Ársskýrsla Íslandsstofu er að þessu sinni gefin út á krefjandi tímum í íslensku atvinnulífi. Um allan heim glíma þjóðir við farsótt sem fáa hefði órað fyrir að gæti valdið viðlíka usla í veröldinni. Á örfáum vikum hefur heimsmyndinni verið breytt, og við stöndum frammi fyrir dýpstu efnahagslægð sem við höfum séð í hundrað ár.
Á árinu 2019 skiptist starfsemin í þrjú markaðssvið: Útflutning, Áfangastaðinn og Erlendar fjárfestingar. Auk þess voru þrjú stoðsvið starfandi: Viðskiptaþróun, Fjármál og rekstur, og Kynningarmál.
Íslandsstofa er framkvæmdaraðili að ýmsum samstarfsverkefnum sem snúa að markaðssetningu á íslenskri vöru og þjónustu. Stærsta þeirra á meðal er Ísland - allt árið. Íslandsstofa hefur einnig umsjón með verkefnum sem tengjast íslenskum sjávarútvegi; Iceland Responsible Fisheries og Bacalao de Islandia. Þá er Íslandsstofa umsjónaraðili verkefnanna Horses of Iceland og Film in Iceland, og sér um framkvæmd Iceland Naturally markaðsverkefnisins í Norður-Ameríku, í samstarfi við utanríkisþjónustuna. Jafnframt er Grænvangur, samstarfsvettvangur um loftslagsmál og grænar lausnir, hýstur hjá Íslandsstofu en vettvangurinn var stofnaður í maí 2019 og er samstarfsverkefni stjórnvalda og atvinnulífs.
Eitt af lykilverkefnum Íslandsstofu á árinu 2019 var vinna við stefnumótun stjórnvalda og atvinnulífs fyrir íslenskan útflutning. Stefnumótunin var unnin fyrir hönd utanríkisráðuneytisins í nánu samráði við íslenskar atvinnugreinar. Alls komu um 400 manns að vinnunni með beinum hætti í gegnum 13 vinnustofur sem haldnar voru um allt land og með fulltrúum helstu útflutningsgreina landsins. Framtíðarstefna fyrir íslenskan útflutning var kynnt á fundi Íslandsstofu 23. október 2019.
Íslandsstofa sér um framkvæmd Útflutningsverðlauna forseta Íslands sem veitt eru í viðurkenningarskyni fyrir markvert framlag til eflingar á útflutningsverslun og gjaldeyrisöflun. Þá er Íslandsstofa aðili að Nýsköpunarverðlaunum Íslands, en tilgangur þeirra er að vekja athygli á þeim mikilvægu tengslum sem eru á milli aukinnar verðmætasköpunar í atvinnulífinu og rannsókna og þekkingaröflunar. Einnig er Íslandsstofa samarfsaðili að þýðingarverðlaununum Orðstír sem veitt eru annað hvert ár í tengslum við Bókmenntahátíð, fyrir þýðingar á íslenskum bókmenntaverkum yfir á erlend tungumál.
Hér má sjá stöðu Íslandsstofu í árslok 2019, rekstrarárangur ársins og fjárhagslega þróun á árinu.